Í vetur verður Vinnusmiðjan með dálítið öðrum hætti en undanfarin ár. Í stað þess að bjóða upp á námskeið einungis eitt kvöld hvert námskeið munum við bjóða upp á tvö helgarnámskeið og tvö eins kvölds námskeið. Fyrsta námsskeiðið var haldið fimmtudagskvöldið 20. spt s.l.
Á helgarnámskeiðin munum fá til okkar tvo frábæra erlenda kennara. Báðir eru viðurkenndir sem fræðimenn og kennarar í sínu heimalandi og víðar. Patrice Baldwin frá Bretlandi og Robert J Landy frá Bandaríkjunum. Í lok vetrar mun svo Þórey Sigþórsdóttir leikari og leiklistarkennari kynna handbók fyrir kennara í leiklistarkennslu sem kemur út nú í haust.
Hér er um að ræða frábær námskeið sem enginn sem áhuga hefur á leiklist í skólastarfi ætti að láta framhjá sér fara.
Nauðsynlegt er að skrá sig á helgarnámsskeiðin og við hvetjum fólk til að skrá sig sem fyrst því takmarkaður fjöldi er á bæði námsskeiðin.
Skráning er á netfangið gud@btnet.is">ogud@btnet.is eða á vigdis@leikhusid.is
Við bendum kennurum sérstaklega á að sækja um styrk í Endurmenntunarsjóð KÍ til að fjármagna námskeiðin.
1. Loving and leaving og Underwater creatures.
Helgarnámskeið 24. – 25. nóvember.
Kennari verður Patrice Baldwin frá Bretlandi.
Patrice er formaður National Drama í Bretlandi. National Drama eru landssamtök kennara sem vinna með leiklist í skólastarfi í Bretlandi. Patrice hefur víðtæka reynslu af námskeiða- og fyrirlestrahaldi með sérstaka áherslu á notkun leiklistar með skapandi hætti í námi. Hún hefur langa reynslu sem kannari og stjórnandi í skólum, auk þess að hafa m.a. unnið sem handritshöfundur að námsefni á vegum BBC. Um þessar mundir vinnur hún sem ráðgjafi í Norfolk héraði að þróun listgreina. Nýlega hefur hún gefið út tvær bækur sem tengjast vinnu með leiklist í skólastarfi. “Teaching literacy through Drama – creative approaches” og “With Drama in mind – real learning in imagined world”( http://www.amazon.co.uk/s?ie=UTF8&search-type=ss&index=books-uk&field-author=Patrice%20Baldwin&page=1) Hún vinnur einnig sem verkefnisstjóri fyrir rannsóknarverkefni á landsvísu í Bretlandi sem kallast: “Drama for learning and creativity – D4LC”
Námskeiðið verður sniðið fyrir yngsta stig og miðstig grunnskólans fyrri daginn og unglingastig seinni daginn. Það er sniðið fyrir alla þá sem vinna með börnum hvort sem er í leiklistarkennslu eða annarri kennslu. Það er sérstaklega hannað til að örva vinnu með sem flest svæði heilans. Á námsskeiðinu verður rannsakað á skapandi hátt með öllum skynfærum í gegnum myndasögur, tónlist, hreyfingar, textabrot og rödd. efni á borð við fólksflutninga og tengsl tilfinninga eins og að þrá og að tilheyra. Í gegnum leiklist munu þátttakendur skoða hvernig folk aðlagar sig nýjum og framandi aðstæðum og menningarheimum tilfinningalega og huglægt.
Námskeiðið verður að mestum hluta verklegt með stuttum fyrirlestrum.
Allir kennarar eru hvattir til að sækja námskeiðið þar sem efni þess er sérstaklega hentugt fyrir hinn almenna kennara.
Skráning á námsskeiðið er á netfangið gud@btnet.is">ogud@btnet.is og vigdis@leikhusid.is
Mögulegt verður að taka báða námskeiðsdagana eða einungis einn.
Einn dagur kostar 12.000 kr
Tveir dagar kosta 20.000 kr.
2. Eldur og ís – Sögur úr fjölskyldum.
Leiklistarmeðferð/Dramaþerapía.
Helgarnámskeið 12. - 13. janúar.
Kennari verður Robert J Landy professor í Leiklistarmeðferð/Dramaþerapíu við New York University.
Robert J Landy er stjórnandi námsbrautar í Dramaþerapíu við New York University og professor í educational theatre og applied psychology. Hann er frumkvöðull á sínu sviði í Bandaríkjunum og heldur fyrirlestra og námsskeið fyrir fagfólk um víða veröld. Sem fræðimaður og og rithöfundur hefur Landy gefið út og samið fjölda bóka, blaðageina og leikrita um leiklist, leiklistarmeðferð/dramaþerapíu og skyld efni. Hans nýjasta bók er: “The couch and the stage: Integrating words and Action in psychotherapy”, gefin út í haust. Hann hefur yfir 30 ára reynslu af leiklistarmeðferð með börnum og fullorðnum með ólík sálfræðileg, hugræn, og hegðunarleg vandamál. Hann hefur unnið í fangelsum og þróað margvísleg meðferðaprógrömm fyrir fanga.
http://www.institutefordramatherapy.com/
Á námskeiðinu verður unnið að því að kanna samskipti innan fjölskyldunnar og hvernig fólk endurspeglar þau og notar í öðrum samskiptum og samböndum utan hennar. Með leiklistarmeðferð sem aðferð verður farið í gegnum ferli þar sem sögur eru búnar til og leiknar. Hópurinn býr til myndir og aðstæður af fjölskyldum og vinnur að því að skilja og endurskoða ráðandi mýtur um fjölskyldulíf. Andstæður eins og eldur og ís, ást og hatur, sekt og fyrirgefning verða skoðaðar í gegnum leik þar sem samvinna hópsins myndar einskonar deiglu sem heldur þátttakendum saman yfir daginn
Skráning á námsskeiðið er á netfangið gud@btnet.is">ogud@btnet.is og vigdis@leikhusid.is
Námskeiðsgjald er 20.000 kr.
3. Leikur, tjáning, sköpun.
Handbók fyrir kennara í leiklist á unglingastigi.
Síðasta vinnusmiðja vetrarins verður í mars. Þar mun Þórey Sigþórsdóttir leikari og leiklistarkennari kynna nýúkomna bók sína.
Þórey er útskrifuð sem leikari frá Leiklistarskóla Íslands 1990 og sem leiklistarkennari frá Listaháskóla Íslands 2004. Hún hefur víðtæka reynslu sem leiklistarkennari á grunnskólastigi og starfar um þessar mundir sem leiklistakennari í föstu starfi við Austurbæjarskóla. Hún hefur einnig um nokkurra ára bil starfað sem kennari í raddmótun við Leiklistardeild Listaháskóla islands.
Í sinni vinnusmiðju mun Þórey kynna bók sína og taka verkleg dæmi um vinnubrögð og æfingar.
Gjald er eins og venjuelga á eins kvölds námskeið 3000 kr.